Skíðaferð Kamps
01.02.2012
Á föstudaginn næstkomandi, 3. febrúar, fer fríður hópur unglinga úr Austurbæjar, Hlíða og Háteigsskóla í skíðaferð til Dalvíkur. Ferðin er orðin árlegur viðburður á dagskrá félagsmiðstöðvanna og stendur til boða fyrir 10. bekkinga allra skólanna. Þetta árið fara 63 unglingar og 5 starfsmenn með. Á dagskránni er auðvita ferð í fjallið, en unglingarnir ráða hvort þau fara bara á laugardeginum eða báða daga. Annað á dagskrá í ferðinni er ball, pizzaveisla, sund og allskonar félagsmiðstöðvarfjör. Við munum gista í félagsmiðstöðinni á Dalvík en þar tekur á móti okkur fyrrum Kamps-búi Árni Jónsson sem hefur unnið á Ylströndinni í Nauthólsvík síðastliðin ár.
Við erum alveg að springa úr spenningi og getum ekki beðið eftir að fá að skella okkur á skíði og skemmta okkur með þessum snilldar hópi af unglingum.
Kveðja
Starfsfólk í 100og1