Fréttir og tilkynningar
Unglingasumar Kamps! | 04.05.2012
Sumarið í unglingastarfinu verður hressara en nokkru sinni fyrr! Dagskráin er stútfull af skemmtilegum viðburðum og starfsfólkið getur ekki beðið eftir að byrja sumarið. Bráðlega opnar sumarupplýsingasíðan okkar hér til hliðar á síðunni með öllum upplýsingum um það sem verður í boði í Kampi í sumar....
Drullumall í apríl! | 22.04.2012
Nú er komið að næsta Drullumalli. Það verður haldið miðvikudaginn 25.apríl í risinu í Austurbæjarskóla klukkan 19:30-21:30.
Ýttu á fréttina til að fá meiri upplýsingar :)
Pógó-æði | 20.04.2012
Nú þegar sumarið er farið að minna á sig með hækkandi sól og góðu veðri hefur félagsmiðstöðvarstarfið færst mikið út undir beran himinn. Íþróttin og leikurinn Pógó er hve vinsælastur þessa dagana og sér ekki fyrir endan á því. Sagan segir að leikurinn eigi upptök sín í Austurbæjarskóla en engar st...
Tropical Ball í Austurbæjarskóla | 10.04.2012
Nemendaráð Austurbæjarskóla var ekki lengi að hugsa sig um hvað þau vildu að yrði á fyrstu opnun eftir langt og gott páskafrí. Það var ball og þemað skyldi vera Tropical. Það á að vekja alla af værum blundi eftir slökun í páskafríinu og dansa fram á kvöld í hawaii skyrtum og blómakjólum. Ballið by...
Opið í félagsmiðstöðvunum yfir páskana | 29.03.2012
Félagsmiðstöðvar Kamps, 100og1 í Austurbæjarskóla, Punktur.is í Hlíðaskóla og 105 í Háteigsskóla eru allar opnar yfir páskafrí skólanna. Opnunatímar haldast óbreyttir fyrir utan mánudaginn 9. apríl, annan í páskum, en þá er lokað hjá okkur. Félagsmistöðvarnar eru því opnar frá 15:00- 18:00 og frá ...
Möguleikhúsð kemur í heimsókn í 10-12 ára starfið | 15.03.2012
Möguleikhúsið hefur staðfest komu sína til okkar í 10-12 ára starfið í 100og1 í næstu viku, 20. mars. Möguleikhúsið stendur fyrir allskonar námskeiðum og skemmtilegum viðburðum fyrir krakka á öllum aldri og hafa þau boðið okkur að vera með námskeið fyrir okkur. Til okkar koma tveir leikarar og ken...
Fjölbreytt dagskrá í félagsmiðstöðinni 100og1 | 09.03.2012
Nemendaráð Austurbæjarskóla hefur staðið fyrir einstaklega skemmtilegri og fjölbreyttri dagskrá uppá síðkastið. Í síðustu viku buðu þau gömlum kennara sínum frá því fyrir 3 árum síðan í heimsókn en hann var frægur fyrir einstaklega góðar draugasögur. Hann kom því og sagði krökkunum draugasögur og ...
Valentínusarball í Háteigsskóla. | 06.03.2012
Miðvikudaginn 15. febrúar bauð nemendafélag Háteigsskóla jafnöldrum sínum í Austurbæjarskóla og Hlíðaskóla á Valentínusarball í Hátíðarsal Háteigsskóla. Salurinn var glæsilega skreyttur og mátti vel skynja ástina, kærleikann og hlýjuna í loftinu þrátt fyrir kuldann úti fyrir. Vel var mætt á ballið o...
Frábær stemming á Drullumalli | 06.03.2012
Það var mögnuð stemming á Drullumalli miðvikudagskvöldið 29.febrúar þar sem hljómsveitirnar Moses Hightower og Sykur héldu uppi stuði fyrir yfir 140 unglingum. Þetta voru fimmtu tónleikarnir í þessari skemmtilegu tónleikaseríu félagsmiðstöðva Kamps en fyrstu tónleikarnir fóru fram í október 2011. Dr...
DRULLUMALL Í NÆSTU VIKU! | 21.02.2012
Miðvikudaginn 29.febrúar verður haldið enn eitt Drullumallið í Austurbæjarskóla. Nú koma fram hljómsveitirnar Sykur og Moses Hightower! Frítt inn eins og alltaf. Öðrum félagsmiðstöðvum er boðið að nýta sér þetta einstaka tækifæri og kíkja í heimsókn með hóp af hressum unglingum. Endilega látið vita ...