Hlíðaskjól er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Hlíðaskóla.
Hægt er að hafa samband við okkur í síma 6647609/6647615 eða sent okkur póst á netfangið hlidaskjol@reykjavik.is
Hlíðaskjól er starfrækt eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur til kl. 17:00. Leitast er við að hafa starfið sem fjölbreyttast svo allir finni eitthvað við sitt hæfi. Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af ÖRYGGI - VIRÐINGU - VÆNTUMÞYKJU - VELLÍÐAN
Lögð er áhersla á að þroska félagslega færni í samskiptum í gegnum leik og starf sem og virðingu fyrir sjálfum sér, öðrum og umhverfi sínu. Frístundaheimilin leitast við að nota lýðræðislega starfshætti, efla hæfni barnanna til að móta sér sjálfstæðar skoðanir og hafa áhrif á umhverfi sitt og aðstæður.
Þjónusta við börn með sérþarfir er skipulögð í hverju frístundaheimili fyrir sig í samvinnu við foreldra, skóla og aðra fagaðila er tengjast börnunum.
Gjaldskrá fyrir dvöl á frístundaheimili:
5 dagar í viku kr. 11.300/mánuð
4 dagar í viku kr. 9.215/mánuð
3 dagar í viku kr. 7.120/mánuð
2 dagar í viku kr. 5.010/mánuð
1 dagur í viku kr. 2.915/mánuð
Ef nýtt er þjónusta kl. 8.00 - 13.30 á heilum dögum, starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríum þarf að greiða fyrir það kr. 1.690 á dag. Á ofangreindum dögum geta börnin eftir sem áður dvalið á frístundaheimilunum frá kl. 13.30 - 17.15. Þeir sem velja að greiða með boðgreiðslum (VISA eða Mastercard) fá afslátt af dvalargjaldi sem nemur kr. 150 á mánuði.
Gjaldskrá fyrir síðdegishressingu:
5 dagar í viku kr. 3.265/mánuð
4 dagar í viku kr. 2.610/mánuð
3 dagar í viku kr. 1.960/mánuð
2 dagar í viku kr. 1.305/mánuð
1 dagur í viku kr. 655/mánuð
Frá 1. febrúar 2011 verður veittur 75% systkinaafsláttur af frístundagjaldi vegna annars barns og 100% systkinaafsláttur vegna þriðja og fjórða barns. Skilyrði er að systkini hafi sama lögheimili og fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Foreldrar greiða fullt fæðisgjald fyrir öll börnin.
Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 15. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Fylla þarf út þar til gerð eyðublöð sem hægt er að nálgast í viðkomandi frístundaheimili og á heimasíðu ÍTR.
Hlíðaskjól is an after school program for children in 1.-4. grade in Hlíðaskóli.
Hlíðaskjól is open after school each day until 17:00 and we do our best to offer many different things each day so that everybody can find something to do. In after school program it is our goal that every individual gets an opportunity to grow and enjoy an environment where he is secure, respected, cared for and feels welcome.