Fréttir og tilkynningar

Betrumbæta heimasíðuna og skráning fyrir næsta vetur.

03.02.2012

Við í Kampi erum að lífga aðeins upp á heimasíðuna okkur. Vinstra megin á síðunni er hægt að sjá hvað er á döfinu í starfinu hjá okkur í Kampi. Til dæmis er hægt að sjá hvaða smiðjur eru á næstu dögum. Einnig höfum við í Hlíðaskjóli uppfært starfsmannalistan okkar. Hann er hægt að finna með því að smella í um Hlíðaskjól hérna vinstra megin á síðunni og síðan er þrýst á starfsfólk. Þar er hægt sjá myndir af öllu starfsfólkinu og upplýsingar um þá. Það hefur verið ráðnir nokkrir nýjir á undanförnum vikum en nú erum við orðinn fullmönnuð og er þess vegna tilvalið fyrir foreldra og forráðamenn að kíkja á fólkið sem er með börnunum þeirra um eftirmiðdaginn. Að lokum viljum við minna foreldra barna í 1.-3. bekkjar að skráning fyrir næsta vetur í frístund hefst í næstu viku.

Kveðja, starfsfólk Hlíðarskjóls.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit