Fréttir og tilkynningar

Heill dagur á föstudaginn!

30.01.2012

Hæ! Það er ekki margt nýtt að frétta úr Draumalandi. Krakkaklúbbur Hallgrímskirkju, sem átti að vera síðasta miðvikudag, verður haldinn næsta miðvikudag og fer skráning sem fyrr í gegnum tölvupóst. Annars er helst í fréttum að næsta föstudag, þann 3. febrúar verður heill dagur í Draumalandi og er síðasti dagur til að skrá börnin miðvikudaginn 1. febrúar. Athugið að skráningin er bindandi og verður ekki tekið við óskráðum börnum. Hægt er að nálgast eyðublað í Draumalandi en þið eigið líka að vera búin að fá það sent í tölvöpósti og getið skilað inn rafrænt. Fleira var það ekki í bili.

Hello there! There´s not much new from Draumaland. The kids club in Hallgrímskirkja, which was supposed to be last wednesday, will be next wednesday and is registration through email. On friday there will be a whole day in Draumaland and the last day to register your kids for that is on next wednesday, february 1st. The registration is binding and we won´t take in unregistered kids. Registration forms can be found in Draumaland, but have also been sent in email. That´s all for now.




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit