Fréttir og tilkynningar

Unglingasumar Kamps!
Unglingasumar Kamps! | 04.05.2012

Sumarið í unglingastarfinu verður hressara en nokkru sinni fyrr! Dagskráin er stútfull af skemmtilegum viðburðum og starfsfólkið getur ekki beðið eftir að byrja sumarið. Bráðlega opnar sumarupplýsingasíðan okkar hér til hliðar á síðunni með öllum upplýsingum um það sem verður í boði í Kampi í sumar. Félagsmiðstöðvarnar okkar eru opnar fyrir alla 8.-10.bekk í Kampshverfinu.

Drullumall í apríl! | 22.04.2012

Nú er komið að næsta Drullumalli. Það verður haldið miðvikudaginn 25.apríl í risinu í Austurbæjarskóla klukkan 19:30-21:30. Ýttu á fréttina til að fá meiri upplýsingar :)

Valentínusarball í Háteigsskóla. | 06.03.2012

Miðvikudaginn 15. febrúar bauð nemendafélag Háteigsskóla jafnöldrum sínum í Austurbæjarskóla og Hlíðaskóla á Valentínusarball í Hátíðarsal Háteigsskóla. Salurinn var glæsilega skreyttur og mátti vel skynja ástina, kærleikann og hlýjuna í loftinu þrátt fyrir kuldann úti fyrir. Vel var mætt á ballið og mikið dansað. Um tónlistina sáu þeir Andri úr 105 og Marínó Breki úr Punktur.is og stóðu sig prýðilega. Unglingarnir voru í sínu fínasta pússi og skemmtu sér vel.


Á döfinni


Engir viðburðir fundust.

Félagsmiðstöðvar


HILMARINN
Frístundakort




Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit