Fréttir og tilkynningar
Unglingasumar Kamps! | 04.05.2012
Sumarið í unglingastarfinu verður hressara en nokkru sinni fyrr! Dagskráin er stútfull af skemmtilegum viðburðum og starfsfólkið getur ekki beðið eftir að byrja sumarið. Bráðlega opnar sumarupplýsingasíðan okkar hér til hliðar á síðunni með öllum upplýsingum um það sem verður í boði í Kampi í sumar. Félagsmiðstöðvarnar okkar eru opnar fyrir alla 8.-10.bekk í Kampshverfinu.
Drullumall í apríl! | 22.04.2012
Nú er komið að næsta Drullumalli. Það verður haldið miðvikudaginn 25.apríl í risinu í Austurbæjarskóla klukkan 19:30-21:30.
Ýttu á fréttina til að fá meiri upplýsingar :)
Pógó-æði | 20.04.2012
Nú þegar sumarið er farið að minna á sig með hækkandi sól og góðu veðri hefur félagsmiðstöðvarstarfið færst mikið út undir beran himinn. Íþróttin og leikurinn Pógó er hve vinsælastur þessa dagana og sér ekki fyrir endan á því. Sagan segir að leikurinn eigi upptök sín í Austurbæjarskóla en engar staðfestar heimildir hafa þó fundist til þess að styðja þá sögu. Á mánudaginn næstkomandi verður svo fótboltakeppni kamps þar sem allir krakkarnir í hverfinu geta tekið þátt.