Fréttir og tilkynningar
Skíðaferð Kamps | 01.02.2012
Á föstudaginn næstkomandi, 3. febrúar, fer fríður hópur unglinga úr Austurbæjar, Hlíða og Háteigsskóla í skíðaferð til Dalvíkur. Ferðin er orðin árlegur viðburður á dagskrá félagsmiðstöðvanna og stendur til boða fyrir 10. bekkinga allra skólanna. Þetta árið fara 63 unglingar og 5 starfsmenn með. Á dagskránni er auðvita ferð í fjallið, en unglingarnir ráða hvort þau fara bara á laugardeginum eða báða daga. Annað á dagskrá í ferðinni er ball, pizzaveisla, sund og allskonar félagsmiðstöðvarfjör.
Drullumall í janúar! | 26.01.2012
Frábærir DRULLUMALLS-tónleikar fóru fram í gær í Austurbæjarskóla. Fram komu Úlfur Úlfur og Smári Tarfur. Stemningin var gríðarleg undir lokin eftir þrususkemmtilegt kvöld. Stofnuð hefur verið svokölluð Drullumallsnefnd samanstendur af völdum unglingum með mikinn tónlistaráhuga og drifkraft. Nefndin sá um að mynda tónleikana í gær, taka viðtöl við tónlistarmennina og aðstoða við framkvæmd tónleikana. Þau stóðu sig með mikilli prýði. Tónleikagestir voru til mikillar fyrirmyndar og hljómsveitirnar eiga hrós skilið fyrir gott starf. Nú er strax komin spenna í hópinn fyrir næsta DRULLUMALL sem verður haldið á hlaupársdaginn 29.febrúar. Þá koma fram Moses Hightower og að öllum líkindum Benni Hemm Hemm.
Söngkeppni Kamps 2012 | 26.01.2012
Söngkeppni Kamps
Föstudaginn 20.janúar var Söngkeppni Kamps haldin í bíósal Austurbæjarskóla. Félagsmiðstöðvarnar 105 í Háteigsskóla, 100og1 í Austurbæjarskóla og Punktur.is. Siguratriði keppninnar fær þátttökurétt í Söngkeppni Samfés fyrir hönd Kamps. Átta atriði voru skráð til keppni, þar af fjögur úr Háteigsskóla.Í dómnefnd voru tónlistarmaðurinn Smári Tarfur, söngkonan Agnes úr hljómsveitinni Sykur og Níels úr sjónvarpsþættinum Týnda kynslóðin. Birta Birgisdóttir úr Háteigsskóla bar sigur úr býtum ásamt bakraddasöngkonum sínum, Þórhildi Helgu Eyþórsdóttur úr Háteigsskóla og Steinunni Rán Bengtsdóttur úr Austurbæjarskóla. Í öðru sætinu hafnaði Ásta Rún Agnarsdóttir úr Hlíðaskóla og Steinunn Ásta Ásgrímsdóttirvarð í því þriðja. Nú hefst strax undirbúningur sigurliðsins fyrir stóru Samfés-keppnina þar sem þáttakendur koma frá félagsmiðstöðvum um allt land. Söngkeppni Samfés fer fram fyrstu helgina í mars í Laugardalshöll og óskum við stúlkunum góðs gengis.