Hjólaskóli Kamps og Dr. Bæk

Það er komið að því!
Við ætlum að bjóða upp á Hjólaskóla í apríl og maí í hverfinu. Það verða tvö námskeið við hvern skóla og er skólinn ætlaður nemendum í 4., 5. og 6. bekk, í Háteigs-, Hlíða- og Austurbæjarskóla.  Þú skráir barnið þitt til þátttöku á þessa rafrænu slóð: Hjólaskólinn. Það kostar kr. 1000 að vera með, sem greitt er á fyrsta degi námskeiðsins. Það er pláss fyrir 12 börn á hvert námskeið. Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Hlíðaskóli:
1. námskeið; 17., 18. og 20. apríl kl. 14:40-16:00
2. námskeið; 24., 25. og 27. apríl kl. 14:40-16:00
Háteigsskóli:
3. námskeið; 2, 3, og 4. maí kl. 14:40-16:00
4. námskeið; 9., 10. og 11. maí kl. 14:40-16:00
Austurbæjarskóli:
5. námskeið; 15., 16. og 18 maí kl. 14:40-16:00
6. námskeið; 22., 23. og 25. maí kl. 14:40-16:00

Á þessum þrem skiptum verður farið yfir stillingar á hjóli og hjálmi. Æfð hjólatækni með leikjum, hjólað í hóp um hverfið, finnum öruggustu leiðina á Valssvæðið og börnin læra helstu reglur og viðmið í umferðinni.  Í síðasta skiptið eru foreldrar sérstaklega velkomnir í hjólferð með börnunum. Börnin verða að koma á hjóli á námskeiðið. TM gefur þátttakendum nýjan hjálm við upphaf námskeiðsins og endurskinsvesti sem verða einkennisföt hópsins.
Allar nánari upplýsingar fást hjá undirrituð 
Hrefna Guðmundsdóttir
Verkefnisstjóri, Gsm: 664-7672
Frístundamiðstöðin Kampur,
Hrefna.gudmundsdottir@reykjavik.is
Sími: 411 5560  www.kampur.is
 


Frístundaheimili






Flýtileiðir


Breyta um leturstærð/Mínar stillingar


Leit