Dalakofi Víkingavika
Í gær, þriðjudag, var valdagur hjá okkur í Dalakofa og fengu börnin að velja hvaða safn þau vildu fara á. Þau gátu valið á milli Þjóðminjasafnsins, Sögusafnsins í Perlunni og Landnámssýningarinnar. Það var mjótt á munum en Þjóðminjasafnið vann með minnsta mun eða einu atkvæði. Það var því meirihlutinn sem réð og farið var í Þjóðminjasafnið eftir hádegi. Þar fengum við að sjá nokkarar glæsilegar sýningar en skemmtilegast fannst börnunum þó vafalaust Skemmtimennt þar sem við fengum að prufa allskonar skemmtilega búninga og læra um ástargaldra fyrri alda.
Í dag fengum við að fara í Sirkússkólan þar sem tóku á móti okkur sirkúsmeistarar úr Sirkús Íslands. VIð lærðum að leika okkur með húlla-hringi, halda fjöðrum á lofti og snúandi diskum. Við kepptum í píramídahlaupi og fengum að æfa okkur að gera kollhnís í gegnum húllahring.
Það fór ekki á milli mála að það eru framtíðar sirkúsmeistarar í Dalakofa þessa vikuna og voru jafnvel börn sem toppuðu starfsmenn sirkhússkólans.
Starfsfólk Dalakofa óskar ykkur gleðilegs 17. júní og við sjáumst hress og kát á föstudaginn en þá munum við fara á Víkingahátíðina í Hafnafirði.