Eitthvað ÍTR Reykjavíkurborg Ungblaðið VALUR
 
14.7.2010

Uppskera unglingstarfs sumarsins

Það var vaskur hópur ungmenna sem bauð ættingjum og vinum í heimsókn, síðasta vinnudaginn sinn í sumarvinnunni í Nauthólsvík.
Um var að ræða viðburðarstjórnunarhóp sem starfaði við að auðga mannlífið í hverfinu sínu og kannski sjálfa sig í leiðinni.
Þau undirbjuggu fáránleikakeppni fyrir 10-12 ára í hverfinu sínu, heimsóttu eldri borgara og buðu upp á hnallþórur, kaffi, upplestur og gítarspil. Einnig skipulögðu þau félagsmiðstöðvadagskrá fyrir unglinga. 
Hópurinn átti ógleymanlegar stundir út á sjó, á kajak, á árabátum, við að veiða, stökkva úr togara út í Atlantshafið svo eitthvað sé nefnt. Endilega kíkið á myndirnar af sýningunni og sumrinu! Annar unglingahópur lauk sínu starfi í Nauthólsvík og bauð öllum í súpu og sýndu uppgerð húsgögn sem prýða munu félagsmiðstöðvarnar.  Gleðilegt sumar!!!! Kampsliðið
  Í dag er 31. júlí 2010
<júlí 2010>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Mánaðaryfirlit Vikuyfirlit
Flokkayfirlit Leit
Á DÖFINNI
Engir viðburðir eru skráðir á næstunni